Fast verð fyrir viðskiptavininn, engin notendagjöld fyrir stofuna, innflutningur sem þú keyrir sjálf(ur) og API sem virkar. 3 mánuðir fríir fyrir hvern viðskiptavin sem þú kemur með, og við flytjum fyrstu þrjá fyrir þig.
30 mínútur á Teams eða Zoom, með gögnum eins viðskiptavinar flutt inn á meðan. Þú skuldbindur þig ekki til neins.
| Fyrir stofuna | Fyrir hvern viðskiptavin sem þú kemur með |
|---|---|
| Flutningur fyrstu þriggja viðskiptavina gerður af okkur, úr Payday, DK eða Reglu | 3 mánuðir fríir á Heklu eða Kötlu, kóði BOKARI3 |
| Hlutverkin Bókari og Uppgjör á hverjum viðskiptavin, engin notendagjöld | Fast verð eftir það, engin prósenta af veltu |
| Skráning á bókaralistann á skildingur.is/bokarar með tengiliðaformi | Flutningur gerður af stofunni með innflutningnum okkar, eða af okkur ef þú vilt |
| API-lykill, vefkrókar og MCP-þjónn fyrir gervigreindartól | Bókarinn sér sömu eindaga og eigandinn |
| Nafngreindur tengiliður (Óli) og sameiginleg rás fyrstu 90 dagana |
Kóðinn BOKARI3 er virkjaður fyrir stofuna eftir kynninguna. Bókaralistinn opnar í janúar 2027, fyrstu fimm stofurnar birtast þá.
Hver viðskiptavinur býður stofunni inn með hlutverki. Bókari hefur fullan aðgang nema að stofna notendur. Uppgjör hefur fullan aðgang nema að launum og notendum. Hvorugt kostar viðskiptavininn krónu, hvað sem starfsfólk stofunnar er margt.

Innflutningurinn er í Stillingum hjá hverju félagi: Payday með API-lykli eða Excel-skrám, DK og Regla. Prófjöfnuðurinn er borinn saman við gamla kerfið upp á krónu áður en eigandinn fær aðganginn. Viltu frekar að við gerum það? Við flytjum fyrstu þrjá viðskiptavinina fyrir stofuna.

API-lykill er stofnaður í Stillingum hjá hverju félagi. Köllin eru þau sömu sem kerfið sjálft notar, skjöluð á skildingur.is/v1/docs/. Vefkrókar senda atburði um leið og þeir verða.
# Aðgangslykill: Stillingar, API-lyklar, hjá hverju félagi
curl -X POST https://skildingur.is/v1/auth/token \
-H 'Content-Type: application/json' \
-d '{"clientId": "...", "clientSecret": "..."}'
# 1. Reikningar félagsins, nýjastir fyrst
curl https://skildingur.is/v1/invoices \
-H "Authorization: Bearer $TOKEN"
# 2. Stofna útgjöld með einni línu
curl -X POST https://skildingur.is/v1/expenses \
-H "Authorization: Bearer $TOKEN" -H 'Content-Type: application/json' \
-d '{"description": "Prentpappír", "expenseDate": "2026-11-03",
"lines": [{"description": "Prentpappír", "amountExcludingVat": 4800,
"vatPercentage": 24}]}'
# 3. Prófjöfnuður yfir tímabil
curl -G https://skildingur.is/v1/reports/trialBalance \
--data-urlencode dateFrom=2026-01-01 --data-urlencode dateTo=2026-12-31 \
-H "Authorization: Bearer $TOKEN"
# 4. Vefkrókar félagsins (og POST á sama slóð til að stofna einn)
curl https://skildingur.is/v1/settings/webhooks \
-H "Authorization: Bearer $TOKEN"
# 5. Hreyfingalisti eins bókhaldslykils
curl -G https://skildingur.is/v1/accounting/accountStatement \
--data-urlencode accountCode=2210 --data-urlencode dateFrom=2026-01-01 --data-urlencode dateTo=2026-12-31 \
-H "Authorization: Bearer $TOKEN"Svör eru JSON með camelCase-heitum. MCP-þjónninn (skildingur.is/v1/mcp) opnar sömu gögn fyrir gervigreindartól stofunnar með sama lykli.
Skil raðar skilum hvers viðskiptavinar eftir eindaga: það sem þarfnast athygli, það sem kemur næstu 30 daga og það sem er síðar. VSK, staðgreiðsla, launamiðar og verktakamiðar eru send til Skattsins úr kerfinu.

Allt sem lítið fyrirtæki þarf, í einu kerfi sem stofan vinnur í án notendagjalda.
Skildingur er í eigu Repeat ehf., íslenskt bókhaldskerfi síðan 2015, endurbyggt 2026. Gögnin eru hýst í Amsterdam, innan EES, hjá DigitalOcean.
Verð eru án VSK, engin binding. Fyrstu 3 mánuðirnir eru fríir fyrir viðskiptavini sem stofan kemur með (kóði BOKARI3).
Ekkert. Hlutverkin Bókari og Uppgjör eru án gjalds á hvern notanda, hvað sem starfsfólk stofunnar er margt. Viðskiptavinirnir borga sína áskrift eftir fríu mánuðina, á föstu verði.
Innflutningurinn í Stillingum tekur Payday með API-lykli og flytur viðskiptavini, vörur, starfsmenn, reikninga, útgjöld, bókhaldslykla og allar hreyfingar. Þú keyrir hann sjálf(ur), eða við flytjum fyrstu þrjá viðskiptavinina fyrir stofuna.
Í þínu kerfi, eins og áður. Prófjöfnuður, hreyfingalisti og fylgiskjöl koma úr Skildingi um API eða sem skrár. Ársreikningur og RSK 1.04 eru ekki í Skildingi.
Skilagreinarnar verða til sjálfkrafa í hverri launakeyrslu, með réttum sjóðum og upphæðum, en eru ekki sendar rafrænt ennþá. Þú sendir þær sjálf(ur). Staðgreiðslan er send til RSK úr kerfinu.
Hann stofnar aðgang með kóðanum BOKARI3, eða þú stofnar hann fyrir hann. Við merkjum fría tímabilið á fyrirtækið eftir kynninguna og það sést í Stillingum hjá viðskiptavininum.
Listi yfir bókhaldsstofur sem vinna í Skildingi, með tengiliðaformi, hér á skildingur.is/bokarar. Hann opnar í janúar 2027. Hakaðu við skráninguna í forminu hér fyrir neðan og stofan fer á listann þegar hann opnar.
Óli, í skildingur@skildingur.is, í síma 416 2000 eða í sameiginlegri rás fyrstu 90 dagana.
Við höfum samband og finnum tíma. Á kynningunni flytjum við gögn eins viðskiptavinar inn úr Payday-útflutningi á meðan þú horfir á. Hakaðu við bókaralistann ef stofan á að birtast þar þegar hann opnar í janúar.