Fyrir fyrirtæki á Payday, Reglu eða DK

Byrjaðu árið í Skildingi

Fast verð sem vex ekki með veltunni, og við flytjum bókhaldið fyrir þig. Fyrstu 6 mánuðirnir fríir fyrir fyrirtæki sem skipta úr öðru kerfi fyrir 31. janúar 2027.

Engin binding, ekkert greiðslukort. Eftir fría tímabilið 2.990 eða 6.990 kr. á mánuði án VSK.

6 mánuðir fríirHekla eða Katla, fyrir skráningar til 31. janúar 2027
5 virkir dagarvið flytjum gögnin og stemmum af
SKIPTA6tilboðskóðinn fylgir skráningunni
Tengist íslensku bönkunumArion bankiÍslandsbankiLandsbankinnSparisjóðirnir
Reiknivél

Hvað borgar þú í dag, og hvað myndir þú borga?

Payday rukkar 2% af veltu upp að hámarki áskriftarleiðar, og lágmark fyrir launavinnslu. Sláðu inn veltuna og sjáðu verðin hlið við hlið. Ef Payday er ódýrara fyrir þína veltu segir reiknivélin það.

Launavinnsla
Reikningar, bókhald og laun
Payday Allur pakkinn með launum11.700 kr.á mánuði án VSK2% af veltu, að lágmarki 4.600 kr. fyrir 1 til 3 starfsmenn og 7.000 kr. fyrir 4 eða fleiri, að hámarki 11.700 kr. Verð lesið 25.10.2026.
Skildingur Katla6.990 kr.á mánuði án VSK6.990 kr. með allt að 10 starfsmönnum, 500 kr. á hvern starfsmann umfram það

Skildingur sparar þér 56.520 kr. á ári.

Verð Payday lesið af payday.is 25.10.2026: Nettur að hámarki 4.600 kr., Allur pakkinn að hámarki 11.700 kr., launavinnsla að lágmarki 4.600 kr. fyrir 1 til 3 starfsmenn og 7.000 kr. fyrir 4 eða fleiri, allt 2% af veltu þar undir. Skildingur: Hekla 2.990 kr., Katla 6.990 kr. með allt að 10 starfsmönnum á launaskrá og 500 kr. á hvern starfsmann umfram það. Öll verð á mánuði án VSK. Payday-verð fyrir fleiri starfsmenn en áskriftin nær yfir eru ekki birt á verðsíðu þeirra og eru ekki í reiknivélinni.

Flutningurinn

Hvað flytjum við, eftir kerfi

Við flytjum það sem kerfið þitt lætur frá sér. Hér er listinn, svo þú vitir fyrirfram hvað kemur með og hvað ekki.

Gamla kerfiðFlyst sjálfkrafaÞarf útflutning frá þérKemur annars staðar frá
Payday með API-lykliViðskiptavinir, vörur, starfsmenn, reikningar með línum, útgjöld, bókhaldslyklar með RSK-lyklum og allar hreyfingar í bókhaldinuLaunasaga (Excel-útflutningur úr Payday)Bankayfirlit koma frá bankanum
Payday með Excel-skrámPrófjöfnuður og hreyfingalisti, borin saman við prófjöfnuð Payday upp á krónuViðskiptavinir, vörur, reikningar, útgjöld og launasaga sem Excel-útflutningurBankayfirlit koma frá bankanum
DKUpphafsstöður, viðskiptavinir og vörurPrófjöfnuður, skuldunautalisti og vörulisti sem Excel-útflutningurBankayfirlit koma frá bankanum
ReglaUpphafsstöður, viðskiptavinir og vörurPrófjöfnuður, viðskiptamannalisti og vörulisti sem Excel-útflutningurBankayfirlit koma frá bankanum

Fylgiskjöl (PDF-viðhengi), notendur og stillingar gamla kerfisins flytjast ekki. Reikningaröðin heldur áfram þar sem gamla kerfið hætti.

Nánari samanburður við þitt kerfi

Verð og eiginleikar hlið við hlið, með reiknivél fyrir þína veltu. Verð lesin 25. október 2026.

Fimm virkir dagar

Hvernig flutningurinn gengur fyrir sig

1Þú bókar flutningVeldu vikuna sem hentar. Við höfum samband og förum yfir hvað á að flytja og frá hvaða dagsetningu.
2Þú sendir okkur gögninAPI-lyklapar úr Payday (Stillingar, API-lyklar) eða útflutningsskrárnar úr gamla kerfinu. Lyklunum er eytt um leið og flutningi lýkur.
3Við flytjum og stemmum afUpphafsstaða og hreyfingar fara inn, og prófjöfnuðurinn er borinn saman við gamla kerfið áður en þú færð aðganginn.
4Þú byrjar árið í SkildingiFyrsti reikningurinn heldur númeraröðinni áfram. Bókarinn þinn fær sinn aðgang án viðbótargjalds.

Viltu frekar hreina byrjun? Þá flytjum við aðeins upphafsstöður um áramót og gamla kerfið geymir söguna.

Stillingar / Flytja inn gögn
Flytja inn gögn í Stillingum Skildings: fyrsta skref af þremur, valið milli Payday með API-lykli, Payday með Excel-skrám, DK og Reglu.
Innifalið

Það sem er til staðar frá fyrsta degi

Allt sem lítið fyrirtæki þarf til að vera í skilum, á einu föstu verði.

  • VSK, staðgreiðsla, launamiðar og verktakamiðar skilað til Skattsins úr kerfinu
  • Bankatengingar við Arion banka, Íslandsbanka, Landsbankann og Sparisjóðina
  • Kröfur í heimabanka án eigin samnings við banka
  • Launavinnsla með launaseðlum og starfsmannaappi
  • Bókari með eigin aðgang, án gjalds á hvern notanda
  • Opið API og vefkrókar

Skildingur er í eigu Repeat ehf. og hefur verið rekinn frá Íslandi síðan 2015. Payday hefur verið í meirihlutaeigu Visma síðan 2023 og Regla var seld finnska Finago 19. október 2026.

Skil
Skil í Skildingi: VSK, staðgreiðsla, skilagreinar og miðar með eindögum, raðað eftir því sem þarfnast athygli, kemur næstu 30 daga og síðar.
Verð

Það sem þú borgar þegar fríu mánuðirnir eru liðnir

Hekla
Fyrir einyrkja og smærri rekstur
2.990 kr. á mánuði án VSK
  • Ótakmarkaðir reikningar
  • Stofna marga reikninga í einu
  • Reikningagerð og tilboðsgerð
  • Afgreiðsluseðlar
  • Birgðabókhald

Verð eru án VSK. Engin binding, ekkert greiðslukort. Fyrstu 6 mánuðirnir eru fríir fyrir fyrirtæki sem skipta úr öðru kerfi fyrir 31. janúar 2027.

Spurt og svarað

Tapa ég sögunni?

Nei, ef hún er til í gamla kerfinu. Úr Payday með API-lykli flytjast viðskiptavinir, vörur, starfsmenn, reikningar, útgjöld, bókhaldslyklar og allar hreyfingar. Úr DK og Reglu flytjum við upphafsstöður, viðskiptavini og vörur, og gamla kerfið geymir eldri hreyfingar. Taflan hér að ofan segir nákvæmlega hvað kemur með.

Bókarinn minn notar Payday. Hvað þá?

Þú býður bókaranum í fyrirtækið þitt með hlutverkinu Bókari, án gjalds á hvern notanda. Bókarinn getur sjálfur keyrt innflutninginn í Stillingum, sótt gögnin um API og unnið áfram eins og áður.

Er þetta örugglega ódýrara?

Ekki alltaf. Payday rukkar 2% af veltu, svo lítið fyrirtæki með litla veltu borgar þeim lítið. Með um 150.000 kr. veltu á mánuði stendur Hekla jafnfætis Nettur, og með um 350.000 kr. stendur Katla jafnfætis Öllum pakkanum án launa. Með launavinnslu fyrir 4 eða fleiri er Katla ódýrari við hvaða veltu sem er. Reiknivélin hér að ofan reiknar þetta fyrir þína tölur.

Hvað ef ég sé eftir því?

Þá ferðu. Engin binding, ekkert greiðslukort, og gögnin þín eru þín: útflutningur sem skrár og opið API hvenær sem er.

Hvað gerist eftir fríu mánuðina?

Þá borgar þú venjulegt verð, 2.990 kr. fyrir Heklu eða 6.990 kr. fyrir Kötlu á mánuði án VSK. Við sendum reikning mánuðinn eftir, og þú getur breytt áskriftinni eða hætt í Stillingum hvenær sem er.

Hvernig fæ ég fríu mánuðina?

Bókaðu flutning, eða stofnaðu aðgang með kóðanum SKIPTA6 og flyttu gögnin inn sjálf(ur) í Stillingum. Fríu mánuðirnir virkjast um leið og flutningi lýkur og sjást í Stillingum undir Áskrift. Fyrirframgreiddir mánuðir hjá gamla kerfinu bætast við, allt að 12 mánuðir samtals.

Hvert leita ég ef ég festist?

Í skildingur@skildingur.is eða í síma 416 2000.

Bóka flutning

Veldu vikuna og við sjáum um rest

Flutningurinn tekur að mesta lagi fimm virka daga. Þú skuldbindur þig ekki til neins með því að bóka. Viltu frekar hringja? Síminn er 416 2000.

Payday
Þeir bætast við fríu mánuðina, allt að 12 samtals.
Fyrsta vika janúar

Við notum upplýsingarnar aðeins til að hafa samband um flutninginn. Persónuvernd