Samanburður

Payday eða Skildingur: verð og eiginleikar

Verðskrár Payday og Skildings hlið við hlið, án VSK, lesnar 25. október 2026, og eiginleikar sem við getum sannað. Ef tölurnar hallast að Skildingi flytjum við bókhaldið fyrir þig, og fyrstu 6 mánuðirnir eru fríir fyrir þá sem skipta fyrir 31. janúar 2027.

Engin binding, ekkert greiðslukort. Skildingur: Keilir 0 kr. með 2 reikningum á mánuði, Hekla 2.990 kr., Katla 6.990 kr. á mánuði án VSK.

Tengist íslensku bönkunumArion bankiÍslandsbankiLandsbankinnSparisjóðirnir
Verð

Verðskrár hlið við hlið

Payday hefur ekkert fast mánaðargjald. Þú borgar 2% af veltu mánaðarins upp að hámarki áskriftarleiðarinnar, og mánuð með launakeyrslu að lágmarki verð Laun-leiðarinnar. Upphæðirnar í töflunni eru því hámörk, og reiknivélin hér fyrir neðan reiknar þitt verð.

Verð lesin 25. október 2026, öll á mánuði án VSK. Athugaðu verðsíðu Payday áður en þú ákveður, verð geta breyst.

Payday

ÁskriftarleiðVerð á mánuði án VSKInnifalið
Netturað hámarki 4.600 kr., 2% af veltu þar undirRafrænir reikningar, ekki bókhald
Laun7.000 kr., 4.600 kr. fyrir 1 til 3 starfsmennLaunavinnsla. Lágmarksgjald í mánuði með launakeyrslu
Þétturað hámarki 8.100 kr., 2% af veltu þar undirReikningar og bókhald, ekki laun
Allur pakkinnað hámarki 11.700 kr., 2% af veltu þar undirReikningar, bókhald, laun, staðgreiðsla, lífeyrissjóður og VSK

30 daga frí prufa á öllum leiðum, engin binding. Verð fyrir fleiri starfsmenn en Laun-leiðin nær yfir eru ekki á verðsíðunni.

Skildingur

ÁskriftarleiðVerð á mánuði án VSKInnifalið
Keilir0 kr.2 reikningar á mánuði, reikningagerð, tilboðsgerð, afgreiðsluseðlar og birgðabókhald
Hekla2.990 kr.Ótakmarkaðir reikningar, margir reikningar í einu, tilboðsgerð, afgreiðsluseðlar og birgðabókhald
Katla6.990 kr.Allt í Heklu, sjálfvirkt bókhald og VSK-skil, bankatengingar og afstemming, kröfur í heimabanka, launavinnsla fyrir allt að 10 starfsmenn og 500 kr. á hvern starfsmann umfram það

Engin binding, ekkert greiðslukort, ekkert gjald á hvern notanda. Bókarinn fær eigin aðgang.

Reiknivél

Hvað borgar þú í dag, og hvað myndir þú borga?

Payday rukkar 2% af veltu upp að hámarki áskriftarleiðar, og lágmark fyrir launavinnslu. Sláðu inn veltuna og sjáðu verðin hlið við hlið. Ef Payday er ódýrara fyrir þína veltu segir reiknivélin það.

Launavinnsla
Reikningar, bókhald og laun
Payday Allur pakkinn með launum11.700 kr.á mánuði án VSK2% af veltu, að lágmarki 4.600 kr. fyrir 1 til 3 starfsmenn og 7.000 kr. fyrir 4 eða fleiri, að hámarki 11.700 kr. Verð lesið 25.10.2026.
Skildingur Katla6.990 kr.á mánuði án VSK6.990 kr. með allt að 10 starfsmönnum, 500 kr. á hvern starfsmann umfram það

Skildingur sparar þér 56.520 kr. á ári.

Verð Payday lesið af payday.is 25.10.2026: Nettur að hámarki 4.600 kr., Allur pakkinn að hámarki 11.700 kr., launavinnsla að lágmarki 4.600 kr. fyrir 1 til 3 starfsmenn og 7.000 kr. fyrir 4 eða fleiri, allt 2% af veltu þar undir. Skildingur: Hekla 2.990 kr., Katla 6.990 kr. með allt að 10 starfsmönnum á launaskrá og 500 kr. á hvern starfsmann umfram það. Öll verð á mánuði án VSK. Payday-verð fyrir fleiri starfsmenn en áskriftin nær yfir eru ekki birt á verðsíðu þeirra og eru ekki í reiknivélinni.

Eiginleikar

Eiginleikar sem við getum sannað

Hér eru aðeins atriði sem við getum sýnt í Skildingi í dag. Þar sem við höfum ekki staðfest hvað Payday gerir stendur „ekki skoðað“, ekki rauður kross.

EiginleikiPaydaySkildingur
BankatengingarArion banki, Íslandsbanki og LandsbankinnArion banki, Íslandsbanki, Landsbankinn og Sparisjóðirnir
Kröfur í heimabankaJá, kröfustofnun á greiddum leiðumJá, án eigin samnings við banka
VSK og staðgreiðsla skilað úr kerfinuJá, VSK og staðgreiðsla fylgja Öllum pakkanumJá, til Skattsins úr kerfinu
Launamiðar og verktakamiðarekki skoðaðJá, skilað til Skattsins úr kerfinu
Starfsmannaappekki skoðaðJá, fyrir starfsfólk á launaskrá
Innflutningur úr öðru kerfiJá, gagnaflutningur úr eldra kerfi er á áskriftarsíðunniJá, úr Payday (API eða Excel), DK, Reglu og dkPlus í Stillingum
API og vefkrókarOpið API (apidoc.payday.is), vefkrókar ekki skoðaðirJá, opið API og vefkrókar
Frí leiðEkki á verðsíðunni. 30 daga frí prufaJá, Keilir með 2 reikningum á mánuði
Engin bindingJá, engin bindingJá, engin binding og ekkert greiðslukort

Lesið af verðsíðum og hjálparsíðum kerfanna 25. október 2026. „Ekki skoðað“ þýðir að við höfum ekki staðfest það, ekki að kerfið geti það ekki.

Skil
Skil í Skildingi: VSK, staðgreiðsla, skilagreinar og miðar með eindögum, raðað eftir því sem þarfnast athygli, kemur næstu 30 daga og síðar.

Skildingur er í eigu Repeat ehf. og hefur verið rekinn frá Íslandi síðan 2015. Payday hefur verið í meirihlutaeigu Visma síðan ágúst 2023.

Tilboð

Skiptu fyrir 31. janúar 2027 og fyrstu 6 mánuðirnir eru fríir

Fyrir fyrirtæki sem skipta úr Payday í Heklu eða Kötlu fyrir 31. janúar 2027. Við flytjum gögnin innan fimm virkra daga, tilboðskóðinn er SKIPTA6, engin binding og ekkert greiðslukort. Eftir fría tímabilið 2.990 eða 6.990 kr. á mánuði án VSK.

6 mánuðir fríirHekla eða Katla, fyrir skráningar til 31. janúar 2027
5 virkir dagarvið flytjum gögnin og stemmum af
SKIPTA6tilboðskóðinn fylgir skráningunni

Hvað flytjum við úr Payday

Gamla kerfiðFlyst sjálfkrafaÞarf útflutning frá þérKemur annars staðar frá
Payday með API-lykliViðskiptavinir, vörur, starfsmenn, reikningar með línum, útgjöld, bókhaldslyklar með RSK-lyklum og allar hreyfingar í bókhaldinuLaunasaga (Excel-útflutningur úr Payday)Bankayfirlit koma frá bankanum
Payday með Excel-skrámPrófjöfnuður og hreyfingalisti, borin saman við prófjöfnuð Payday upp á krónuViðskiptavinir, vörur, reikningar, útgjöld og launasaga sem Excel-útflutningurBankayfirlit koma frá bankanum

Fylgiskjöl (PDF-viðhengi), notendur og stillingar gamla kerfisins flytjast ekki. Reikningaröðin heldur áfram þar sem gamla kerfið hætti. Allt um flutninginn, skref fyrir skref

Stillingar / Flytja inn gögn
Flytja inn gögn í Stillingum Skildings: fyrsta skref af þremur, valið milli Payday með API-lykli, Payday með Excel-skrám, DK og Reglu.
Bóka flutning

Veldu vikuna og við sjáum um rest

Flutningurinn tekur að mesta lagi fimm virka daga. Þú skuldbindur þig ekki til neins með því að bóka. Viltu frekar hringja? Síminn er 416 2000.

Payday
Þeir bætast við fríu mánuðina, allt að 12 samtals.
Fyrsta vika janúar

Við notum upplýsingarnar aðeins til að hafa samband um flutninginn. Persónuvernd

Spurt og svarað

Get ég flutt söguna úr Payday?

Já. Með API-lykli úr Payday flytjast viðskiptavinir, vörur, starfsmenn, reikningar með línum, útgjöld, bókhaldslyklar og allar hreyfingar í bókhaldinu. Launasagan kemur sem Excel-útflutningur úr Payday. Prófjöfnuðurinn er borinn saman við Payday upp á krónu áður en þú færð aðganginn.

Er Skildingur alltaf ódýrari en Payday?

Nei. Payday rukkar 2% af veltu, svo lítil velta þýðir lágt verð hjá þeim. Hekla stendur jafnfætis Nettur við um 150.000 kr. veltu á mánuði og Katla jafnfætis Öllum pakkanum án launa við um 350.000 kr. Með launavinnslu fyrir 4 eða fleiri er Katla ódýrari við hvaða veltu sem er. Reiknivélin hér að ofan sýnir þínar tölur.

Bókarinn minn notar Payday. Hvað þá?

Þú býður bókaranum í fyrirtækið þitt með hlutverkinu Bókari, án gjalds á hvern notanda. Bókarinn getur sjálfur keyrt innflutninginn í Stillingum, sótt gögnin um API og unnið áfram eins og áður.

Hvað gerist eftir 6 mánuði?

Þá borgar þú venjulegt verð, 2.990 kr. fyrir Heklu eða 6.990 kr. fyrir Kötlu á mánuði án VSK. Við sendum reikning mánuðinn eftir, og þú getur breytt áskriftinni eða hætt í Stillingum hvenær sem er.

Er Skildingur hýstur á Íslandi?

Nei. Gögnin eru hýst hjá DigitalOcean í Amsterdam, innan EES. Ef hýsing á Íslandi ræður úrslitum er Skildingur ekki rétta kerfið fyrir þig.

Hvernig fæ ég fríu mánuðina?

Bókaðu flutning, eða stofnaðu aðgang með kóðanum SKIPTA6 og flyttu gögnin inn sjálf(ur) í Stillingum. Fríu mánuðirnir virkjast um leið og flutningi lýkur og sjást í Stillingum undir Áskrift. Fyrirframgreiddir mánuðir hjá gamla kerfinu bætast við, allt að 12 mánuðir samtals.